Aðalvalmynd

Undirsíðukubbur

Teljari

Gagnasafn

FótboltiSif og Hlynur

Getur maður nokkuð farið frá Madrid án þess að fara á einn fótboltaleik og sjá Real Madrid keppa??? Eftir mikil hneyksli frá vinum Hlyns fyrir að vera ekki búin að fara á leik þá ætlum við skötuhjú að fara á fótboltaleik í kvöld! já þið lásuð rétt, við ætlum að kíkja á völlinn eins og sannir fótboltaaðdáendur og upplifa steminguna á vellinum Brosandi Helga ætlar að kíkja með okkur og verður án efa steming þar sem Real Madrid er að fara að keppa við Espanyol sem er skal ég ykkur segja í 5 sæti í spænska boltanum Hlæjandi Ég vona nú helst að stemingin verði góð.... þar sem ég hef lítið vit á boltanum!

Knús á línuna, Sif

Nú er komið að því....Sif og Hlynur

..... að fara í ferðalag sem við erum búin að bíða spennt eftir í langan tíma og nú er loksins komið að því. Mig hefur alla tíð langað til að fara í svona ferðalag og er ferðinni heitið til Portúgals til að sjá og kynnast hvernig vínframleiðsu er háttað í vínbúgarði Gloria Reynolds. www.gloriareynolds.com Þarna er framleitt hágæða rauðvín og hvítvín sem einungis er selt í gegnum vínklúbb þar sem framleiðslan er takmörkuð vegna áherslu á gæðaframleiðslu. Vínbúgarðurinn er staðsettur austur af Lisabon og rétt við landamæri Spánar.


 

Við förum á morgun í fylgd með Carlos sem er bekkjarfélaginn minn sem ég hef kynnst vel í skólanum og munum við hefja ferðalagið okkar á að fara í heimabæ hans Badajoz sem er á suðvesturhluta Spánar alveg við landamæri Portúgals. Við gistum heima hjá honum á föstudagsnóttina og fáum við að smakka á mat sem er sérstaklega frá hans héraði sem mamma hans ætlar að útbúa handa okkur á spænskan máta. Hvert hérað á Spáni hefur sína eigin matar- og vínmenningu og er mikill munur hvenig henni er háttað. Þótt framleitt sé út um allan Spán, vín, ólífur og jamon (spænsk traditional skinka sem er heilt svínslæri skorið í þunnar sneiðar og borðað þannig) svo eitthvað sé nefnt, þá er ekki þar með að segja að það sé allt eins eða mjög líkt. Veðurfar og land Spánar er mjög mismunandi, fyrir norðan eru mikil og stór fjöll, skógar og gróður þar sem mikið er af vatni, þar einnig snjór og er mjög kalt á veturna. Annað er að segja um suður hlutan þar sem allir Íslendigarnir vilja vera, þar sem milt, þurrt og gott veðurfar og sól allt árið um kring og af þeim sökum er landið mjög þurrt. Svo er Madrid þar á milli þar sem hitinn fer upp undir 48 gráður á sumrin og um frostmark á veturna, enda flýja allir Madridarbúar Madrid á sumrin. Af þessum sökum er allt sem framleitt er á Spáni mjög mismunandi eftir landshlutum.



Á laugardaginn förum við á vínbúgarðinn með Carlos. Þetta er fyrirtæki sem foreldrar hans eiga og pabbi hans rekur, þannig að við fáum einkaleiðsögn um búgarðinn sem er ekki slæmt þar sem Carlos hefur unnið þar mjög mikið á undaförnum árum við hin ýmsu störf og þekkir allt sem viðkemur vínframleiðslu. Spánverjar eru mikið fyrir mat og vín og er stór hluti dagsins tekinn frá fyrir það enda eru barir og veitingastaðir út um allt. Yfirleitt heldur fólk að siesta hjá Spánverjum sé til að leggja sig í nokkra klukkutíma en hún er í raun tilkomin af því þegar fjölskyldan og eða vinir hittust til að forðast hitann og notuðu tíman til að borða góðan mat drekka vín og er þessi hefð ennþá mjög sterk. Carlos er hinn mesti matmaður og kemst oft fátt annað að heldur en góður matur og vín og hefur hann mjög gaman að því að fræða mann og kenna okkur um sína matarmenningu þar sem ég hef einnig mjög gaman af því. Á laugardagskvöldið munum við öll snæða saman með kærustunni hans Carlos og pabba hans og er planið víst að við munum fá að smakka sérstakan portúgalskan kjúklingarétt. Kjúklingarétturinn verður fyrir valinu vegna þess að við buðum honum og kærustunni hans í mat um daginn og elduðum við kjúklingabringur handa þeim, síðan þá er hann búinn að tala um að ég verði að prufa þennan sérstaka rétt.

Ef tími gefst til munum við skreppa til Lisabon höfuðborgar Portúgals á sunnudaginn. 

Loksins bloggaði ég í fyrsta sinn Brosandi

Kveðja Hlynur

Langt síðan síðastSif og Hlynur

Hæhæ, úfff það er allt of langt síðan ég bloggaði síðast!! Hef hreinlega bara ekki nennt því en nú ætla ég að sýna smá lit og segja ykkur stuttlega frá því hvað á daga okkar hefur drifið að undanförnu.
Það sem stendur að sjálfsögðu helst upp úr er að Anna Kristín og Gyða komu í heimsókn til okkar 7-10 feb. Okkur fannst ekkert smá gaman að fá þær hingað og sýna þeim það helsta hérna í borginni. Við fórum þær á alla helstu túrista staðina og þá staði sem okkur finnst gaman að fara til, fórum út að borða, á jazz bar, í Retiro þar sem við stelpurnar leigðum okkur bát á vatninu og sóluðum okkur og höfðum það kósí saman. Veðrið var alveg geggjað þá daga sem stelpurnar voru hér og einn daginn var meira að segja 21° sem leiddi til þess að við fengum freknur á nebbann og rauðar bringur Brosandi
Annað sem við höfum brallað er að fara aftur á jazz bar, fórum og eyddum heilum degi í IKEA og íþróttavöruverslun með Helgu og Ægi, héldum bollukaffi á sunnudeginum fyrir bolludaginn með hinum íslensku krökkunum í IED bökuðum alveg helling af bollum sem tókust bara voða vel!! 
Í gær buðum við Carlos bekkjarfélaga Hlyns og kærustunni hans í mat og fórum eftir það í partý til krakka úr bekknum hans Hlyns sem var bara eins og diskótek þar sem tónlistin var sett í botn, að sjálfsögðu varð fyrir valinu einhver algjör sýra og svo buðu gestgjafarnir upp á áfengi og bland fyrir alla, en við vorum um 40 í partýinu. Hérna er þetta svona, ekkert mál að bjóða upp á áfengi og fólk kann sig, það er ekkert að drekka sig dauðadrukkið þó að það sé frítt áfengi eins og við Íslendingarnir myndum gera. Við Hlynur kunnum okkur nú og vorum bara róleg í drykkjunni. Þegar líða fór á nóttina hélt allur hópurinn af stað á skemmtistað sem var afar áhugaverður Brosandi Mér fannst ég nú ekki alveg falla inn í hópinn með hálfberum stelpum, fólki með mestu tattoo sem ég hef séð, hringi og lokka um allan líkama, dreddara í hárinu (kann ekki að skrifa það) og karlkyns dansara klædda í leður dress eða sem kvenmenn! hehe en þetta var upplifun vægast sagt og varð þessi staður fyrir valinu þar sem einn bekkjarbróðir Hlyns sem er fyrir stráka valdi staðinn.
Í dag vorum við menningarleg og fórum á Reina Sofía safnið. Þar er núna sérstök sýning á verkum eftir Picasso sem aldrei hafa verið til sýnis á Spáni, rosarlega flott sum þeirra. Á safninu eru einnig verk eftir nokkra fræga listamenn eins og Dalí og Míró.
Já þetta er svona það helsta.... man bara ekki hvað við erum búin að gera meira skemmtilegt það er svo langt síðan ég skrifaði síðast.

Þangað til næst,

besos Sif


Frábær helgi !!Sif og Hlynur

Hola amigos....
.... já helgin var mjög fín Brosandi 
Á föstudagskvöldið fórum við að sjálfsögðu á salsa námskeiðið, en þetta var víst ekki byrjendahópur og þar sem allir kunnu eitthvað í þessu nema við endaði með að við sátum bara og horfðum á fólkið dansa, sem var reyndar mjög skemmtilegt. Í næstu viku byrjar kannski byrjendanámskeið og ætlum við frekar að skella okkur á það! eftir danskennsluna fórum við með bekkjarsystur Hlyns, þeirri sem er að kenna salsað, á dansstað sem fólk kemur bara til að dansa. Hún og kærastinn hennar dönsuðu og dönsuðu, en við sátum bara og horfðum á allt fólkið. Við hefðum bara þvælst fyrir ef við hefðum eitthvað reynt að skaka okkur þarna Brosandi 
Laugardagurinn fór síðan að mestu í lærdóm hjá Hlyni og eitthvað bras hjá mér. Um kvöldið fórum við út að borða með Helgu og Ægi á veitingastað sem er í El Corte Inglés, á efstu hæðinni með góðu útsýni yfir borgina, það var voða fínt. Eftir það fórum við í afmælispartý til Skúla og stelpunnar sem hann leigir með. Þar var svaka stuð og bauð Skúli krökkunum upp á Tópas-skot sem var misvel tekið meðal krakkanna... hehe....
Á sunnudaginn vöknuðum við fyrir allar aldir og fórum á mjög flotta og áhugaverða ljósmyndasýningu. Myndirnar voru teknar af Don McCullin sem hefur verið ljósmyndari síðan 1956 og mest allan tíman unnið fyrir Sunday Times Magazine og hans aðal áhersla hefur verið á stríðsljósmyndir. Hér fyrir neðan eru tvær myndir sem voru á sýningunni:

Eftir sýninguna fórum við upp í fjöllin hérna rétt hjá Madrid með Laulu, Alvaro, Brynju vinkonu Laulu og dóttur hennar. Laula var svo sæt að bjóða okkur út að borða þar, en þar er hægt að fá voða gott kjöt en það er mjög vinsælt meðal madridarbúa að fara á þetta svæði og fá sér að borða um helgar. Í forrétt fengum við okkur salat, jamón og eggjarétt, í aðalrétt alveg rosarlega gott lambakjöt og svínakjöt sem er eldað á alveg sérstakan hátt (þori ekki að fara með alveg hvernig..) og í eftirrétt fengum við okkur ís. Þvílíkar kræsingar eins og þið sjáið... mmmmm..... Okkur fannst frábært að fara aðeins út fyrir borgina og sjá landslagið hérna í kring, fjöllin og skíðasvæðin, sem reyndar eru lokuð vegna snjóleysis.

Já svona var helgin..... þangað til næst, hafið það gott.

Besos Sif

Það sem á daga okkar drífur....Sif og Hlynur

Hæ hæ

Ákvað bara að koma með smá fréttir af okkur þar sem ég veit ekki alveg hvað ég á af mér að gera.... er búin að skoða atvinnuauglýsingarnar í dag og það var bara ekkert sem ég gat sótt þar....
Við Hlynur erum búin að skrá okkur á salsa námskeið (ekki það sama og við fórum á í síðustu viku, það var ekki skipulagt námskeið) en það byrjar annað kvöld og er einu sinni í viku á föstudagskvöldum í tvo tíma í senn. Það verður gaman að sjá hvernig það er og hvernig okkur mun ganga Hlæjandi Á sunnudaginn ætlum við síðan með Laulu og Alvaro litla frænda upp í fjöllin hérna rétt hjá og fá okkur dýrindis lambakjöt og skoða okkur um þar. Það eru þrjú skíðasvæði þar sem við ætlum líka að kíkja á en ætli við förum ekki seinna til að skíða. Ég hlakka ekkert smá til að fara þarna og sjá almennilega hvernig landslagið er hérna í kringum borgina.

Svo styttist heldur betur í að Anna Kristín og Gyða vinkonur mínar komi í heimsókn til okkar. Þær ætla að vera hjá okkur 7-10 febrúar og verður án efa mikið húllummmhæ á okkur Brosandi Það er svo margt að skoða og gera hérna í þessari fallegu borg, hlakka ekkert smá til að fá þær í heimsókn og þar sem ég sé fram á að vera enn óákveðin með hvað ég er að fara að gera þá mun ég hafa nægan tíma fyrir stelpurnar Brosandi

Fer að setja inn myndir, þarf bara fyrst að stofna einhverja myndasíðu því það kemst svo lítið inn á þessa.... getur einhver ráðlagt mér um góða síðu til að setja myndir inn á???

Skrifa kannski á laugardaginn og segi frá hvenrig salsa dans tíminn gekk Brosandi

Besos, Sif

Stelpukvöld - strákakvöld - óvissukvöldSif og Hlynur

Við samlokurnar voru aldrei þessu vant ekki saman á miðvikudagskvöldið.... ég fór í minn fyrsta saumaklúbb með íslenskum stelpum sem búa hér i Madrid. Laula frænka var svo dugleg og sniðug að skipuleggja hittinginn. Við hittumst (þær sem komust) á þýskum veitingastað rétt hjá Plaza de Espana sem er hérna rétt hjá mér. Það var mjög gaman að hitta aðrar stelpur og heyra hvað þær höfðu að segja um Spán, Madrid, Ísland og aðra hluti sem við spjölluðum um.
Á meðan ég skemmti mér með stelpunum fór Hlynur í heimsókn til Carlos, eins bekkarfélaga síns, sem er án efa einn mesti matgæðingur sem við þekkjum. Carlos bauð Hlyni sérstaklega í heimsókn til að gæða sér á jamón, sem er sérunnið svínslæri og er skorið niður í þunnar sneiðar og borðað eitt og sér - þetta er mjög vinsælt hér og einn af tapasréttum Spánverja. Stráksi var búinn að kaupa heilt læri og sátu þeir félagar langt fram eftir nóttu og skiptust á að skera sneiðar af lærinu og sötruðu bjór.... svona læri er enginn smá gripur og því ekki skrítið að hann hafi þurft á hjálp að halda við að borða eitthvað af því.

Á fimmtudagskvöldið kom Hlynur mér heldur betur á óvart þegar hann fór með mig á stað rétt hjá okkur til að dansa salsa! Ég vissi sem sagt ekkert hvað við vorum að fara að .gera né hvert við vorum að fara. Þetta er sérstakur dans staður, þar sem fólk kemur aðeins í þeim tilgangi að dansa salsa og hafa gaman af. Á fimmtud. kvöldum er alltaf salsa kennsla þarna og fórum við sem sagt á hana Brosandi þetta var ekkert smá gaman og fólkið sem kunni þetta fór alveg á kostum. Við ætlum klárlega að fara þarna aftur og dilla okkur saman... hehe.


Hér er veðrið alveg geggjað núna, mér finnst það bara alveg eins og sumrin heima, nema bara meiri sól Hlæjandi

Held að þetta séu bara helstu fréttirnar af okkur núna.

Blogga meira næst!

Kveðja Sif

Komin aftur til MadridSif og Hlynur

Hæ allir, þá erum við komin aftur út eftir ansi gott og skemmtilegt jólafrí. Komum á sunnudagskvöldið í alveg ÍSkalda íbúðina! og þar sem við getum ekki hitað hjá okkur nema með litla ofninum sem við keyptum í haust settum við hann í botn inn í herbergi og skulfum þangað til smá hiti komst á!

En burt sé frá þessu þá áttum við æðisleg jól bæði tvö og það var ekkert smá gaman að hitta alla vini og ættingja aftur! Ég þakka bara góðar stundir og hlakka til að hitta ykkur öll næst!!

En nú er nýtt ár gengið í garð enn eina ferðina og ég er viss um að það verði ekki síðra en það sem nú er ný lokið.
Það helsta sem gerðist í okkar lífi á árinu 2007 var:
       Fyrrihluta árs unnum helling í sætu íbúðinni okkar, ég sat nú aðallega á rassinum og skrifaði og skrifaði ritgerðina mína til að ná að klára hana áður en við myndum flytja út sem og tókst og ég útskrifaðist í júní. Hlynur var líka í námi, vinnu og á fullu að vinna í íbúðinni. Hann komst að sjálfsögðu inn í skólann hér í Madrid og við ákváðum að flytja út um sumarið. Lærðum síðan spænsku um haustið og nutum lífsins Brosandi Hlynur byrjaði loks í IED í okt.

Þetta var mjög skemmtilegt ár! enginn smá munur á fyrrihluta þess og á þeim síðari! seinnihluti ársins var aðeins rólegri en sá fyrri hjá okkur báðum!!! Nú verður sett meira trukk í þetta en ég held að við höfum bæði algerlega þurft á þessari afslöppun að halda saman.
Ég er á fullu þessa dagana að sækja um vinnur, er búin að sækja um ýmislegt í ferðabransanum og vona að sjálfsögðu að ég fái einhverja skemmtilega vinnu svo ég hafi nú eitthvað að gera og geti æft mig í spænskunni! Sjáum til hvernig þetta mun ganga, er enn róleg yfir þessu Brosandi 

Jæja hef þetta ekki lengra núna því við erum að fara í partý til Helgu og Ægis, ætlum að fá okkur aðeins í tána með Íslendingunum sem við þekkjum hérna Brosandi

Un gran beso, Sif

Slappleiki, pínu stress en gott jólaskap.....Sif og Hlynur

......... einkennir okkur í dag! Erum bæði að drukna úr kvefi, með hausverk og erum bara slöpp yfir höfuð. En frídagarnir fóru algerlega í lærdóm hjá Hlyni, það var teiknað og teiknað, slípað, málað og teikanað enn meira.... nóg að gera hjá honum við að klára síðustu verkefnin og leggja lokahönd á önnur. Svo fer hann líka í allavega 2 próf í næstu viku. Ég lærði nú eitthvað smá líka, en er ekkert að stressa mig of mikið á þessu (vona samt að ég eigi eftir að standa mig), reyni frekar að hugsa vel um minn mann Glottandi Nú er ótrúlega stutt í að við förum heim á klakann... en þangað til verður sko nóg að gera, þannig að það verður gott að fara heim og slaka á með fjölskyldu og vinum og eiga alvöru íslensk jól Brosandi Hér er jólatraffíkin byrjuð og varla þverfótað fyrir fólki. Allt þetta fólk getur nú alveg farið í mann...... sérstaklega þar sem fólk gengur svo hægt, ég hef bara ekki þolinmæði í þetta, en við eigum eftir að kaupa allar jólagjafirnar nema tvær, þannig að maður lætur sig allavega hafa það að fara í búðir til að versla þær. Hinsvegar er fallegt að sjá jólaskrautið hér, alltaf svo skemmtileg stemning í kringum jólin!!

Jæja hef þetta stutt í þetta skiptið, ætla að hjálpa Hlyni aðeins núna, verð að standa mig sem sérleg aðstoðardama hans Brosandi

Hasta luego amigos!!

Sif

HelgarfríSif og Hlynur

Já við erum bara komin í helgarfrí.... ótrúlegt hvað það er mikið af fiestum hérna á Spáni, það er bara alltaf löng helgi! við kvörtum nú ekki yfir því þó að ég eigi nú ekki í erfiðleikum með að mæta í skólann í 3 tíma á dag. Þetta frí kemur sér sérstaklega fyrir Hlyn því hann þarf að læra alveg heilmikið fyrir próf og hann þarf að klára ýmis verkefni í skólanum. Versta við þessi frí er að flest allar búðir eru lokaðar og því ekki hægt að nýta tímann og skoða jólagjafir... en ég hef nú ekki áhyggjur af því, ætti að ná að kaupa þær allar... er ekki það upptekin Brosandi

Það er allt gott að frétta af okkur eins og vanalega... erum ekkert búin að plana helgina, nema Hlynur þarf að vera duglegur að læra og ég ætla nú líka að kíkja eitthvað í skruddurnar þar sem lokaprófin eru hjá mér í næstu viku.

Þangað til næst.....
hafið það gott og munið að kommenta Koss

Sif
 

Setti loksins inn myndir....Sif og Hlynur

...... í myndaalbúmið af húsinu okkar og nokkrum hórum fyrir utan hjá okkur! sumar myndirnar komu eitthvað asnalega út veit ekkert af hverju, en það verður bara að hafa það.

Njótið!

Adios Sif
Síða 1 af 3

Auglýsing

Bloggvinir

Heimasíður vina

Litlu krúttin